
~Rakel~
Ég fæddist þriðjudaginn 7. september 2004 klukkan 22.38 á fæðingadeild Landspítalans. Ég var ekkert að flýta mér í heiminn og á endanum þurfti ég smá aðstoð. Ég fæddist 3590 gr eða rétt rúmar 14 merkur og var 52 cm, reyndar svindlaði ég pínu því ég var með dálítið mikinn bjúg á höfðinu.
~Andri Már~
Ég fæddist líka á fæðingardeild Landspítalans en rétt tæpum tveimur árum seinna en Rakel systir, mánudaginn 21. ágúst 2006 klukkan 07.04. Ég fæddist 3.725 gr. eða 15 merkur og var 52 cm.
Mamma okkar heitir Eygló og pabbi okkar Helgi og þeim finnst við vera flottustu börnin í öllum heiminum.
